January 2011
6 posts
Markmið fyrir árið 2011
- Jákvæðni umfram öllu. Það er ekkert ómögulegt. Vera bara seigur.
- Heilbrigð sál í hraustum líkama. Stunda líkamsrækt og saunu a.m.k. 2 í viku
- Nettvörka. Vera vinur vina minna. Reyna að gleyma ekki nöfnum á fólki sem ég var að kynnast fyrir 5 mínútum síðan
- Reyna að hafa meiri hemil á áfengisneyslu og reykingum. Treystu þessum pósti. Það er 1. Janúar og þú ert mjög þunnur þegar þetta...
December 2010
9 posts
Playing Half Life 2 again. This time I’m going to finish! Glory to the xbox
August 2010
2 posts
Þetta er búið
Þá er maður kominn heim til Íslands og verður að slútta þessu. Ástæðan fyrir því að ég skrifaði ekkert í nokkuð langan tíma var sú að tölvan mín bilaði í júlí og þá var bara ekkert internet nema í skólanum sem var það langt í burtu að maður skaust ekkert þangað bara til þess að skrifa svona.
Ég hefði nú alveg getað skrifað á pappír en það var ekki gert. Ég nýtti mér bara þann stutta tíma sem ég...
July 2010
5 posts
Meira rokk
Fór á tónleika með 5 böndum í Yoyogihachiman á laugardaginn klukkan 13 niðri í kjallaraholu sem var sem betur fer vel loftræst. 500 kall inn og maður komst í það feitt.
-Anma
-Make it last
-Spy Master
-Encroached
-Mad Manix
Anma
feiti
Mig langar til þess að skrifa smá. Ég vil byrja á því að nefna það að ég fór út að skokka núna rétt áðan. Það er örugglega yfir 25 stiga hiti akkúrat núna og það er raki á við eitthvað fyndið eins og bílrúðuna í Titanic kynlífsatriðinu.
Ég áttaði mig ekki á því fyrr en ég var búinn að hlaupa að ég var allur gljáandi. Húðin á mér var rennisleip og viðurstyggileg eins og hún á að vera eftir...
June 2010
12 posts
Góðir dagar: Dagurinn í dag
Ég er búinn að eiga yndislegan dag. Kom heim snemma og hitti Asako áður en hún fór í vinnuna. Við fórum og fengum okkur sjúklega spicy kínverskt ramen á þessum frekar milda degi miðað við hvað hefur verið í gangi hérna síðastliðna daga. Þá er ég samt að meina 25 stiga hiti. Þar sem ég hef ekkert betra að gera en að skemmta mér hérna þá ákvað ég að koma með henni í vinnuna, en hún vinnur á bar...
Club Iceland / 17 júní á 19 júní
Ég fékk að halda upp á þjóðhátíðardaginn í gær, þann nítjánda með Club Iceland sem er klúbbur sem samanstendur af fólki sem hefur áhuga á Íslandi. Það er þvílíkur metnaður í fólkinu sem stendur í kring um þennan klúbb, en þar fer Toshi fremstur í flokki. Toshi hefur mikinn áhuga á Íslandi og vinnur eitthvað í kringum Ísland ef ég man rétt. Mér var sem sagt boðið að koma og halda ræðu sem var...
キャロット
Ég gerði veggspjald fyrir Japan-festival japönskudeildarinnar á síðasta ári þar sem ég taldi upp 10 hluti sem maður yrði að gera í Japan. Ég man ekki alveg eftir öllu því sem ég setti þar inn en ég efast um að ég myndi búa til sama lista í dag, nú þegar ég er virkilega búinn að upplifa Japan.
Eitt sem ég myndi pottþétt halda inná listanum er að fara og heimsækja lítið hverfi í Shinjuku sem...
sjaldgæfur draumur
Mig dreymir eiginlega aldrei. Ég var að vakna og man þetta ennþá og látum það þá allt bara flakka.
mig dreymdi að ríkistrjórnin á íslandi hefði hætt. Jóhanna var orðin of gömul og nennti þessu ekki. Þá steig upp í pontuna einhver feitur kall sem ég kannaðist ekki við og sagði að það væri kominn tími til að hætta þessu rugli, sagði fólki að það mætti fara heim frá alþingi í dag og sló hamrinum....
Skjalfest og staðfest
Það sem er helst í fréttum þessa daganna eru kannski nýafstaðin miðannarpróf. Ég stóð mig bara ágætlega ef ég dæmi sjálfur. Hefði alveg getað gert betur en ég kýs að taka ekki mark á einkunnum hérna. Ég tek mun frekar mark á samtölum mínum við japani á japönsku, en það er engin spurning um að einsárs dvöl hérna í mekka Japanskrar menningar, Japan, hefur gert mér gott og það er ekkert verra...
May 2010
9 posts
Hækur í dag
Fótgangandi fer
án tónlistar, lífið er
mjög óathyglisvert.
—-
stór túnfisksbiti,
soya-sósa, wasabi
ég mun sakna sushi.
—-
skil voða lítið
en skil samt mikið meira
en ég held, held ég.
—-
peningarnir fljúga
meiri bjór, meiri bjór, takk.
feginn er ég samt.
—-
Mikið af fólki
getur ímyndað þér en
getur ekki séð.
—-
Til staðar er hún
Má samt bara horfa...
Þessi gaur var trommaði á málningaföturnar sínar á meðan hann var í hádegishléi. Flinkur !
Shinjuku um helgina
Ég heimsótti mjög fræga bootleg-concert / rare tónlistar stöff / rare hryllingsmynda / klám búð um helgina sem heitir Airs (það er alltaf klám á efstu hæðinni, það er ágætis regla með japanskar búðir).
Það var hægt að finna allan fjandann þarna inni. Það sem ég kíkti á var tónleika bootleg af tónleikum At the drive in frá 2000, áður en þeir gáfu út Relationship of a command, geggjaðir tónleikar...
April 2010
5 posts
Skítakuldi
Þeir segja að það hafi ekki verið svona kalt í Tokyo í áratugi. Vorinu sem mér var lofað með öllum þeim hita og allri þeirri snilld sem átti að fylgja með hefur verið frestað þangað til japönsku guðirnir leyfa. Þetta minnir á Íslenskt vor, sem er náttúrulega ömurlegt. Gluggaveður, skítakuldi og jafnvel snjókoma en það snjóaði í Tokyo fyrir nokkrum vikum jafnaði þar með “met” frá því...
Hisashiburi
Það er orðið langt síðan að ég skrifaði hérna inni. Ætli ástæðan fyrir því sé ekki sú að það eru dramatískir atburðir að gerast í kringum mann hvern einasta dag. Fjölskyldan kom og fór sem og Búi vinur. Lífið hérna úti er flókið og ætli maður stundum finnst mér eins og ég sé að eldast í hundaárum hérna úti. Það er náttúrulega ekki nógu gott því ég hafði alltaf ætlað mér að vera ungur að eilífu.
...
March 2010
10 posts